Hlaupanámskeið - FRESTAÐ
Hlaupanámskeið - FRESTAÐ
Hlaupanámskeið - FRESTAÐ
Hlaupanámskeið - FRESTAÐ
Hlaupanámskeið - FRESTAÐ
Hlaupanámskeið - FRESTAÐ

Hlaupanámskeið - FRESTAÐ

Verð 8.500 kr. 0 kr.
Vsk innifalið

“Fjar”- hlaupanámskeið í gegnum lokaðan Facebookhóp ætlað byrjendum eða þeim sem eru að hefja hlaup eftir langt hlé.  - NÁMSKEIÐINU HEFUR ÞVÍ MIÐUR VERIÐ FRESTAÐ STEFNT ER AÐ ÖÐRU NÁMSKEIÐI Í UPPHAFI NÆSTA ÁRS.

Alls 10 vikna námskeið. Fjölbreytt fræðsla um hlaupatengd málefni einnig stuðningur og aðhald frá reyndum þjálfurum. Markmiðið er að þátttakendur byggi upp þol til að geta hlaupið í 30 mínútur án hvíldar.

Námskeiðið hefur fengið frábær ummæli þátttakenda sem hafa verið yfir 500 talsins (má lesa á myndum).

Kostar 8500 kr. 

Um námskeiðið

Á námskeiðinu er boðið upp á faglega hópfræðslu um æfingar og önnur hlaupatengd málefni auk hvatningar og aðhalds. 

  • Unnið er út frá einfaldri æfingaáætlun (mismunandi erfiðleikastig) sem gerir ráð fyrir að hlaupið sé 3 x í viku. Álag æfinga eykst hægt og rólega. Hlaupaæfingar eru á ábyrgð þátttakenda sjálfra, þar sem hver og einn hleypur á sínum hraða. 
  • Markmiðið er að þátttakendur byggi upp þol til að geta hlaupið í 30 mínútur án hvíldar og finni fyrir jákvæðum áhrifum hreyfingar á andlegt- og líkamlegt form.
  • Stöðumat er lagt fyrir, bæði í upphafi og lok námskeiðs. Annars vegar  í formi valkvæðrar spurningakönnunar, um líkamlega, andlega og félagslega þætti heilsu, auk þess sem þátttakendur geta tekið einfalt stöðumat til að finna þoltölu sína. 

Skráðir þátttakendur fá tölvupóst frá SÍBS með boði í Facebookhóp í vikunni fyrir upphaf námskeiðs athugið að sá póstur getur lent í "ruslinu". Ef engin póstur berst hafið endilega samband namskeid@sibs.is.

Umgjörð þjálfunar á Facebook

  • Námskeiðið hefst á undirbúningsviku.
  • Haldnir verða tveir smærri hóp- fjarfundir. Sá fyrri verður í upphafi námskeiðs og sá síðari um miðbik þess. 
  • Í hverri viku býðst þátttakendum að sækja fámennari spjallfundi með þjálfurum. Á þeim gefst tækifæri til að fá einstaklingsmiðaða ráðgjöf frá þjálfurum. 
  • Fræðsluefnið er ýmist sett fram í stuttum myndböndum eða stöðufærslum.
  • Æfingaáætlun vikunnar er kynnt í upphafi hverrar viku.
  • Alla virka daga veita þjálfarar góð ráð eftir því sem við á um viðfangsefni eins og hlaupaskó, hlaupafatnað, teygjur, upphitunar- og styrktaræfingar, hlaupastíll.
  • Þjálfarar svara spurningum þátttakenda á vegg námskeiðsins og á spjallfundunum og fylgjast með því hvort og hvernig þátttakendum gengur.
  • Þátttakendur deila reynslu sinni og góðum ráðum og styðja þannig við bakið á hver öðrum.

Markhópur

  • Áherslur á námskeiðinu miðast við byrjendur eða þá sem eru að hefja hlaup eftir hlé og vilja fara varlega af stað.
  • Þátttakendur verða að hafa Facebookaðgang og geta nýtt sér Zoom forritið hafi þeir í hyggju að sækja hópfundi með þjálfurum.

Þjálfarar

Fríða Rún Þórðardóttir

Fríða er næringarfræðingur að mennt og hefur starfað í eldhúsi Landspítala síðan 1998. Fríða hefur hlaupið í meira en 40 ár og keppti með landsliði Íslands í frjálsíþróttum í um 20 ár. Hún þjálfar nú hlaupahóp Víkings.

Ingunn Guðbrandsdóttir 

Ingunn hefur víðtæka menntun á sviði sálfræði og mannauðsstjórnunar, er heilsu markþjálfi og jógakennari. Ingunn er að auki með um 25 ára reynslu af ýmis konar líkamsræktar þjálfun. Hún kolféll fyrir langhlaupum fyrir 5 árum og er nú jógakennari og aðstoðarþjálfari hlaupahóps Víkings.

Annað

Ef þú svara einhverri spurningu játandi hér á eftir, ráðfærðu þig við lækni áður en þú skráir þig á námskeiðið. 

  • Ertu yfir fimmtugu og hefur ekki hreyft þig lengi? 
  • Finnurðu fyrir mæði við minnstu áreynslu?
  • Ertu með hjartasjúkdóm eða háan blóðþrýsting? 
  • Finnurðu fyrir verk í brjósti við hreyfingu?
  • Finnur þú fyrir sársauka í liðum við hreyfingu?
  • Áttu það til að falla í yfirlið við áreynslu?
  • Finnurðu fyrir verk eða bólgum í hálsi, öxlum eftir þjálfun?

    Deila þessari vöru